 |
Lýsa - skreið
Skreið er framleiðsluheiti yfir þurrkaðan, afhausaðan fisk. Þurrkun er gömul aðferð til að auka geymsluþol fisks. Íslendingar hafa þurrkað fisk í aldaraðir en í nútímanum má segja að hér á landi sé aðeins borðuð ein tegund skreiðar þ.e. harðfiskur, öll önnur skreið er framleidd til útflutnings.
Helstu markaðir fyrir skreið eru Ítalía og nokkur lönd í vestanverðri mið-Afríku.
Þurrkun fisksins getur verið hvort heldur sem er,
inniþurrkun - og er þá jarðhiti gjarnan nýttur til verkunarinnar eða
útiþurrkun þar sem tveir fiskar eru spyrtir saman og hengdir upp í þartil gerðum fiskhjöllum og sól og vindur látin um þurrkunina.
Til baka
|
|
|
 |
 |
 |
|
 |